Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Aðalfundur 2008 í mars!

Sælir félagar og gleðilegt golfár,

 nú styttist í að hinn árlegi aðalfundur verði haldinn, ekki virðist hafa verið tekin ákvörðun um hvenær í mars skyldi halda fundinn svo nú er um að gera að koma með tillögur.

Hanbury Manor 2006

Ef einhver hefur einhverja fasta dagsetningu hjá sér þá er um að gera að láta heyra frá sér.  

Helstu mál á aðalfundinum:
    Fyrirkomulag GíR mótaraðarinnar 2008.
    Breyting á meistaramóti.
    Evrópumeistaramót GíR.
    Inntaka og staða félagsmanna.
    Önnur mál.

Legg til að við séum duglegir að nýta okkur bloggsíðuna sem samskiptamáta, menn geta skrifað inn fréttir eða hugleiðingar og svo er að kommenta á hverja frétt. Sendi ykkur linkinn um það  hvernig á að setja inn fréttir og annað slíkt.

Legg til að við nýtum okkur einnig myndaalbúmin  á síðunni og ef einhverjar myndir er til frá starfinu á síðasta ári væri gaman að setja þær inn. Jafnvel eldri myndir en það.

Með golfkveðju,

Bikarmeistarinn. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband